Erlingur

August 21, 2006

Skólinn byrjaður og fríið búið

Filed under: — Erlingur @ 2:39 pm

Þá er þetta stutta frí búið. Búinn að vera á Íslandi og á Spáni. Það var fínt hvoru tveggja. Var fyrir norðan hjá ömmu og afa í nokkra daga, og hjá ömmu Sigrúnu fyrir sunnan í nokkra daga. Vann mér inn slatta af peningingum fyrir sunnan þannig að ég gæti keypt mér nokkra kalla og myndir þegar ég fór til spánar.

Á spáni var rosa gott að vera. Ég var í sjónum mest allan daginn og mamma segi að það séu komin tálkn á mig og ég sé svartur á bakinu. Það var rosa skemmtilegt að vera á svona bretti og leika mér. Skemmtilegast var það þegar Sandra var kominn líka, því sólrún er nú ekki upp á marga fiska enn - enda ekki synd ;-)

Verst að vera byrjaður í skólanum aftur. Eina góða við það, er að þá hitti ég vini mína og skátarnir byrja aftur. Jæja skrifa meira seinna. Á a skrifa um sumarfríið mitt í skólanum. Set hann sennilega inn á þegar hann er búinn.

Sigrun & Gunnar - Tjele Skovej 4, 8830 Tjele