Bionicle
Bionicle er dótið sem mér finnst skemmtilegast að leika mér með. Ég á marga karla en aldrei nóg. Núna á ég 28 karla af öllum stærðum og gerðum. En hvað er bionicle. Fullorðið fólk veit nú eiginlega ekkert um þá - lame. Þetta eru karlar og konur sem eru vélmenni. Sumir eru góðir og aðrir vondir. Þeir eru í 7 mismunandi liturm. Rauður er eldur, blár er vatn, grænn er loft, brúnn er steinn eða jörð, hvítur er ís, gulur eða gylltur sem er ljós og að lokum svartur sem er skuggi makuta. Hvað er Makuta segir mamma - arg, konur. Makuta er vondasti vondasti skugginn í alheiminum, konungur skuggana - evil himself.
Það eru til myndir um bionicle þar sem þeir berjast um yfirráð á eyjunni Mata nui. Í gamla daga var eyjan kölluð Metro Noi. Og ÞEIR GÓÐU SIGRA ALLTAF. Ég á tvær myndir en vantar eina (verst að mamma og pabbi geta ekki unnið í lotto - bara eina milljón).
Núna eru komnir nýjir karlar. 23 nýir karlar og mig vantar bara 21 og einn nýjan stóran. Eins gott það eru að koma jól. Get ekki beðið. Hér getið þig séð þessa karla þeir eru mega mega mega mega FLOTTIR http://www.lego.com/eng/bionicle/Default.aspx?domainredir=www.bionicle.com
Ef ykkur langar svakalega að gefa mér svona karl þa getið þið sent mér e-mail á erlingur@hafdal.net og ég sendi lista yfir þá karla sem mig vantar asap.
Ég á líka bionicle spil. Sandra frænka var dugleg að spila við mig í sumar þegar hún var í heimsókn en mamma og pabbi voru hálf löt við það. Sólrún vill alveg spila en það gengur nú hálf illa. Get næstum því bara spilað við sjálfan mig.
år 2008 jeg er nu buna gefa bionicle karlana til brodun minn flosa. En han praf ad ver sterri til ad få karlana. Kanski verdi flosi allveg brjaldur med bionicle karla eins jeg var.